Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu nýlega um 75fm 3ja herbergja íbúð á 5. hæð með stæði í bílakjallara í glæsilegum útsýnisturni við sjávarsíðuna í Keflavík. Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni og hefur hún svalir til suðurs. Endaíbúð með útsýni út á Faxaflóa frá eldhúsglugga sem og frá svalalokun, stofu og svefnherbergisgluggi í suður. Húsið sjálft er staðsteypt hús klætt að utan með áli, þreföldu gleri og rennihurðum fyrir svalinar. Gólfhiti er í íbúðunni. Sérsmíðaðar innréttingar og hurðar frá Parka með stein borðplötum í eldhúsi og baði. Svalir afllokaðar með svalalokun og útsýni sem bætir nýtingu eignarinnar.
****Eigninni fylgir stæði í bílakjallara*****Innréttingar frá Parka með stein-borðplötum í eldhúsi og baði, spónn frá UNILIN – COCA BROWN
Tæki frá AEG
Innihurðar frá Parka
Inngangshurðar frá GKS
Blöndunartæki frá GROHE, innbyggð í sturtu og handlaugum
Eignin er sérstaklega vönduð og er mikið lagt uppúr útsýni til sjávar úr flestum íbúðum þar sem stórir gluggar fá að njóta sín.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Brynjar Guðlaugsson
Lögg. fasteignasali
s. 896-5464 eða 420-4000
[email protected]