Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu 3ja herbergja 100,2fm íbúð við Móavelli 4 í vel staðsettu lyftuhúsi í hjarta Reykjanesbæjar.----Frábær staðsetning örstutt frá stórmarkaði, leikskóla, íþróttahúsi, fimleikahúsi og skólum----
Forstofa er flísalögð og þar er góður skápur.
Gangur er parketlagður.
Í eldhúsi er parket á gólfi, þar er falleg innrétting með eldunareyju og góðum tækjum, ofn og helluborð. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja með eigninni.
Stofa er parketlögð og hurð er út á lokaðar svalir frá stofu. Eldhús og stofa liggja saman í stóru opnu rými.
Á baðherbergi eru flísar bæði á gólfi og á veggjum, þar er góð innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og góð sturtuaðstaða stúkuð af með gleri.
Í þvottahúsi eru flísar á gólfi, þar er góð innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Skolvaskur í borði og gluggi.
Svefnherbergin eru tvö og eru þau bæði parketlögð og skápar eru í þeim báðum.
Hol er parketlagt. Notað sem sjónvarpshol.
*Stutt í verslun, skóla og leikskóla.
*Sérinngangur af svölum.
*Vegleg rennihurð út á lokaðar svalir.
*Sér geymsla er í sameign - Epoxy á gólfi.
*Sérmerkt stæði fylgir eigninni.
*Lóð er grasilögð. Gangstéttir eru hellulagðar.
*Búið er að setja upp hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla.
*Sérsmíðaðar innréttingar frá Grindinni ehf í Grindavík.
Nánari upplýsingar um eignina veitir:
Halldór Magnússon lfs
S: 420-4000 / 863-4495
[email protected]