Stuðlaberg fasteignasala kynnir í einkasölu endaraðhús að í vinsælu holtaskólahverfi við Vatnsholti 1d í Keflavík. Búið er að endurnýja eignina að hluta og má þar nefna eldhús, tæki, baðherbergi, gólfhiti, gler að hluta, þakglugga, lagnir að hluta og eignin klædd.Forstofa með flísum á gólfi. Þar er fataskápur.
Hol með parketi á gólfi.
Eldhús, stofa og sjónvarpshol eru í opnu rými . Þar er parket á gólfi. Stílhrein hvít innrétting í eldhúsi með góðu skápa og vinnuplássi, þar er innbyggð uppþvottavél, span helluborð og tveir ofnar. Frá
stofu er útgengt á
baklóð.
Herbergin fjögur eru með parketi á gólfum. Fataskápar eru í þremur þeirra.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Ljós innrétting með góðu skápaplássi, upphengt salerni, handklæðaofn og stór sturta.
Þvottahús með flísum á gólfi, góð innrétting. Mjög gott skápapláss.
Innangengt er í
bílskúr frá
þvottahúsi. Þar er málað gólf og lítið geymsluloft.
Lóð er frágengin á snyrtilegan hátt. Bílaplan er steypt og stimplað, hitalögn er í hluta þess. Á baklóð er hellulögð aðstaða þar sem gert er ráð fyrir að hægt sé að setja heitan pott.
Brynjar Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
s: 896-5464
[email protected]