Stuðlaberg Fasteignasala kynnir einstakt tækifæri til þess að eignast virkilega vel við haldið einbýlishús í botngötu við Heiðarbraut í Keflavík þar sem krakkarnir geta gengið bæði í skóla og leikskóla án þess að fara yfir götu. Um er að ræða 193fm 6 herbergja einbýlishús sem er talsvert endurnýjað. Stofan virkilega björt með arinn eldstæði þar sem gengið er út á suð-vestur sólpall. Snyrtileg grasilögð lóð umliggur eignina.
*Þakkantur endurnýjaður
*Búið er að endurnýja alla glugga áveðurs
*Allar útihurðir ásamt bílskúrshurðum endurnýjaðar
*Gestasalerni endurnýjað
*Þvottahús með nýlegri innréttingu
*Eldhús endurnýjað
*Nýlega sett epoxy á bílskúr og þvottahúsAnddyri hefur flísar á gólfi. Þar innaf er
gestasalerni og
anddyrisherbergi. Flísar eru á gólfum, einnig er nýlega endurnýjaður fataskápur í anddyri.
Stofa er björt og glæsileg með parket á gólfi, þar er arinn. Gengið er út á
sólpall sem snýr í suð-vestur.
Eldhús hefur verið endurnýjað á glæsilegan máta, þaðan er opið inní stofu sem myndar skemmtilega nýtingu.
Þvottahús er innaf eldhúsi og þar er endurnýjuð innrétting ásamt nýlegu epoxy á gólfi.
Bílskúr er tvöfaldur með epoxy á gólfi.
Herbergin eru í heildina fimm en möguleiki er að stækka tvö þeirra með því að opna á milli.
Baðherbergi er snyrtilegt með sturtu og hornbaðkari.
Brynjar Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
s: 896-5464
[email protected]