Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu nýlega um 103fm íbúð í einu glæsilegasta fjölbýli Reykjanesbæjar, Pósthússtræti 7. Um er að ræða rúmgóða 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð með stæði í bílakjallara. Eigni hefur sérsmíðaðar innréttingar frá Parka, vönduð heimilstæki frá Ormsson, aukna lofthæð, loftræstikerfi, þrefalt gler, svalalokun og vandað viðarparket og margt fleirra.Gengið er inní snyrtilega
sameign með teppum á gólfi.
Andyri hefur parket á gólfi, þar eru veglegir skápar.
Þvottahús hefur flísar á gólfum, góða innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnu hæð.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og hluta af veggjum. Þar eru innréttingar með spegla skáp, stein á borði og vönduð innbyggð blöndunartæki.
Herbergin eru tvö og hafa þau bæði parket á gólfi ásamt fataskápum.
Stofan og
eldhús er í sameiginlegu rými. Virkilega falleg innrétting með vönduðum heimilstækjum, mikið skápapláss. Hátt er til lofts ásamt góðu útsýni út á sjó. Gengið er út á lokaðar
svalir með hitara frá eldhúsi.
Rúmgóð
geymsla í kjallara fylgir eigninni. Í kjallara er einnig sameiginlega hjólageymsla ásamt klakavél til þess að kæla drykkina.
Stæði í lokaðri
bílageymslu fylgir.
Brynjar Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
s: 896-5464
[email protected]