Báruklöpp 8, 250 Garður
98.500.000 Kr.
Parhús
3 herb.
140 m2
98.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
6.980.000

Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu mjög vönduð 3ja herbergja 140,6fm steypt parhús með innbyggðum bílskúr við Báruklöpp  nr. 6 - 12 í Garði, Suðurnesjabæ.

Eignirnar skilast  fullbúnar jafnt að innan sem utan og eru tilbúnar til afhendingar í maí 2025.
Nýtt og glæsilegt hverfi - sami byggingaraðili hefur byggt alla götuna á snyrtilegan hátt.


*Um er að ræða vel skipulögð og mjög vönduð parhús sem skiptast í forstofu, hol, stofu, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi ásamt bílskúr.
*Eignirnar skilast fullfrágengnar að innan sem utan samkvæmt skilalýsingu seljanda.
*Húsin eru staðsteypt og gluggar og útidyrahurðir eru úr timbri/áli. 
*Eignirnar eru klæddar að utan með tveggja millimetra þykkri  standandi álklæðningu.
*Lóð er fullfrágengin með torfi, steypt plan og stéttar með snjóbræðslulögn, sorptunnuskýli og sólpallar með heitum potti á lóð.

*Að innan eru íbúðirnar fullfrágengnar með sérsmíðuðum innréttingum og hurðum frá Grindinni ehf. ásamt vönduðum tækjum í eldhúsi, fullmálaðar og með gæða gólfefnum.
*Gólfhiti er í öllum öllum gólfum.
*Hljóðvistardúkur er í loftum.

*Stutt er í skóla og leikskóla. Falleg náttúra er allt um kring og stutt er í ýmiss konar útivistarmöguleika.

*Kaupendur  greiða skipulagsgjald þegar það verður lagt á sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignanna.

Byggingaraðili:
Bragi Guðmundsson ehf. -  er húsbyggjandi og ábyrgðaraðili verksins. Framúrskarandi og traustur verktaki með áratuga reynslu.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Magnússon lfs. 
S:  420-4000 /863-4495 - [email protected]   

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.