Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt fimm herbergja 149fm einbýlishús á einni hæð ásamt 34.5 fm bílskúr.
Birt stærð eignarinnar skv. HMS er 183,5fm.Forstofa er flísalögð og þar er góður
skápur.
Hol er parketlagt
Á baðherbergi eru flísar bæði á gólfi og á veggjum, þar er innrétting, flísalögð sturtuaðstaða, upphengt salerni, handklæðaofn og baðkar.
Svefnherbergin eru fjögur og öll eru þau rúmgóð og með parket á gólfi. Skápar eru í þremur herbergjum.
Í eldhúsi er góð innrétting ásamt tækjum, granít borðplata og eyja sem hægt er að sitja við. Opið er úr eldhúsi í stofu.
Þvottahús er innaf eldhúsi, þar eru nýlegar flísar á gólfi, nýleg innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaskur í borði og hurð út á lóð.
Stofa og borðstofa er stórt og opið rými með parketi á gólfi, þaðan er hurð út á niðurgrafinn skjólgóðan sólpall með
heitum potti sem snýr í suður.
*Bílskúr er fullbúinn, hiti og rafmagn.
*Búið er að stúka af parketlagt herbergi í hluta af skúrnum, sérinngangur.
*Háaloft er yfir eigninni, uppgengt frá bílskúr.
*Innkeyrsla er stimpluð.
*Þakjárn málað og yfirfarið árið 2022.
*Snyrtileg og vel gróin lóð.
*Flott staðsetning, örstutt frá skóla og leikskóla.
Nánari upplýsingar um eignina veitir:
Halldór Magnússon lfs
S: 420-4000 / 863-4495
[email protected]