Báruklöpp 6, 250 Garður
97.500.000 Kr.
Parhús
3 herb.
140 m2
97.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
6.980.000

Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu mjög vönduð 3ja herbergja 140,6fm steypt parhús með innbyggðum bílskúr við Báruklöpp  nr. 6 - 12 í Garði, Suðurnesjabæ.
Eignirnar skilast  fullbúnar jafnt að innan sem utan og eru tilbúnar til afhendingar í apríl 2025.



*Um er að ræða vel skipulögð og mjög vönduð parhús sem skiptast í forstofu, hol, stofu, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi ásamt bílskúr.
*Eignirnar skilast fullfrágengnar að innan sem utan samkvæmt skilalýsingu seljanda.
*Húsin eru staðsteypt og gluggar og útidyrahurðir eru úr timbri/áli. 
*Lóð er fullfrágengin með torfi, steypt plan og stéttar með snjóbræðslulögn, sorptunnuskýli og sólpallar með potti á lóð.

*Að innan eru íbúðirnar fullfrágengnar með sérsmíðuðum innréttingum og hurðum frá Grindinni ehf. ásamt vönduðum tækjum í eldhúsi, fullmálaðar og með gæða gólfefnum. Gólfhiti í öllum gólfum.

*Stutt er í skóla og leikskóla. Falleg náttúra er allt um kring og stutt er í ýmiss konar útivistarmöguleika.

*Kaupendur  greiða skipulagsgjald þegar það verður lagt á sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignanna.

Byggingaraðili:
Bragi Guðmundsson ehf. -  er húsbyggjandi og ábyrgðaraðili verksins. Framúrskarandi og traustur verktaki með áratuga reynslu.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Magnússon lfs. 
S:  420-4000 /863-4495 - [email protected]   

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.