Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilega 6 herbergja efri sér hæð við Miðtún 2 í Keflavík. Um er að ræða mikið endurnýjaða eign í vinsælu Holtaskólahverfi sem skiptist í fjögur til fimm svefnherbergi, baðherbergi, þvott, eldhús/stofu, andyri, hol og geymslu á lóð. Opið er á milli tveggja herbergja sem myndar eitt mjög stórt herbergi með tveimur hurðum. Eignin er í hinu vinsælu holtaskólahverfi þar sem stutt er í skóla, leiksskóla, sundmiðstöð og helstu íþróttamannvirki. Eigninni fylgir ca 15fm geymsla, hurðin á geymslunni er bílskúrshurðin. Tvennar svalir eru á eigninni og er hún öll hin glæsilegasta.Eignin hefur verið talsvert endurnýjuð og má þar nefna m.a inntök, lagnir, hús klætt og einangrað að utan, þak, innkeyrsla, hiti í stétt, sorptunnuskýli, allt tengt rafmagni, innréttingar, góflefni, hurðar, gluggar og gler. Innréttingar, skápar, hurðar og gólfefni eru frá Parka. Steinn er á borðplötu inná baði. Danfoss stýrikerfi fyrir gólfhitann, Grohe blöndunartæki frá Byko. Innfelld lýsing og kastarabrautir.
Glæsileg eign þar sem engu var til sparað.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Brynjar Guðlaugsson
Lögg. fasteignasali
s. 8965464 eða 420-4000
[email protected]