Stuðlaberg Fasteignasala kynnir fiskverkunar/iðnaðarhúsnæði í byggingu við bryggjuna í Sandgerði. Eignin er í dag 2.164,6fm þar af 263,4fm í millilofti þar sem gert er ráð fyrir geymslum og matsal. Eignin er uppsteypt með öllu gluggum og hurðum og steyptu gólfi skráð á byggingarstig 3. Ýmsir möguleikar m.a að skipta eigninni niður í nokkur bil en búið er að leggja ídráttar rör fyrir því.
Einstök bygging á afar sérstökum stað.
Eign sem hentar vel fyrir fiskvinnslu, staðsett á bryggju og aðeins 10 mínútna keyrsla í flugstöðina. Fiskmarkaðurinn er í næstu götu.
Allar nánari upplýsingar veitir: Brynjar Guðlaugsson Lögg. fasteignasali s. 8965464 eða 420-4000 [email protected]